Topp tíu ástæður
fyrir því að Silvía Nótt eigi að keppa fyrir hönd Íslands í
Eurovision 2006.
#10 Eurovision er ekki kirkja, fólk
tekur þessari keppni alltof hátíðlega. Það má alveg fokka aðeins í
þessum evrópubúum með smá einkahúmor, við erum ekkert að fara að
vinna þetta hvort sem er.
#9 Hommi og Nammi, eða hvað sem
dansararnir hétu. Hve svalir voru þeir? Ótrúlega svalir, svo svalir
voru þeir.
#8 Sigga Beinteins að syngja
bakrödd, hún er í bleikum sokkabuxum.
#7 Lagið, það er ofboðslega
grípandi og manni langar að heyra það aftur.
#6 Viðlagið, þú færð viðlagið á
heilann. Það er bara þannig.
#5 Minnistæðisleiki, muniði eftir
einhverju erlendu eurovision lagi sem var ekki grín ("Waterloo" og
danska lagið er ekki tekið með)? Væri ekki gaman ef fólk mundi muna
eftir okkur.
#4 Silvía Nótt, hún á það skilið.
Væri líka ekki gaman ef evrópa mundi brengla staðalímynd íslendinga
aðeins upp?
#3 Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson,
bara til að fá að heyra'ann hlæja aftur.
#2 Það sem það er ekki, það er ekki
sungið af Geir Ólafs eða fyrrum Idol keppanda, það fjallar hvorki
um vin Bobby Fishers eða ömmu Ómar Ragnarssonar, það stendur enginn
upp frá píanói sem heldur samt áfram að spila í því...
#1 Það er svalt, alveg eins og
Ísland.